Bitch Trippin Slutface..... það er víst nýja nickneimið mitt segir sigrún
hvað á maður svo að gera í kvöld??? er það Bond eða er það Bjór???
» 3 hafa sagt sína skoðun
vá hvað ég er þreytt.... ég hef bara sjaldan verið jafn þreytt!!! ætlaði aldrei að geta vaknað í morgun og reyndar langaði mig það ekkert þar sem ég var komin með svo skemmtilega vekjaraklukkuhringingu, sem er sko diskó lag úr Boogie Nights og það er snilld... Fór í heimsókn til Bjarna og Anniku í gær og við vorum að bluetootha smá á milli símanna okkar já mín er nebbla komin með nýjan síma.... again... það er greinilega eitthvað við þessa ellefu, það bara hverfur allt þar inni, síminn minn og nýja peysan mín núna þessa helgi..freeeeekar svekkjandi!! En það var annars alveg ótrúlega gaman, ég og Arndís hristum rassana eins og við fengjum borgað fyrir...
Á fimmtudaginn bauð Sigrún Hnoðri mér á Herra Ísland... húsið opnaði klukkan 8 og við vorum orðnar frekar skrautleg öll bara um klukkan 9. Hannes, gaurinn sem ég ber ábyrgð á því að var í þessari keppni, stóð sig með sóma og landaði því að vera valinn NEXT herrann ásamt því að vera í topp 6... ég er án efa búin að redda honum að ríða alveg næsta árið, og allavega það hehe.. Ég kíkti svo bara eftir það á nokkra krakka úr vinnunni sem höfðu líka ákveðið að kíkja smá út
Langflottastur í keppninni að okkar mati
*************
Fólk fer nú misjafnlega útbúið á djammið....eeeeeeen.. er þetta ekki eeeeeeiiiinum of langt gengið???
***********
Nýja vinnan gengur bara rosalega vel, ég hef gaman af því að vera þar og er að vinna með æðislegu fólki! Allt hitt gengur bara upp og ofan, held samt að hlutirnir séu í einhverri lægð núna, kannski af því að jólin eru að nálgast, ég veit ekki... Jólin eru allavega ekki alveg uppáhaldstími ársins hjá mér, sérstaklega ekki eftir að jólin byrjuðu að koma í október jólaskraut út um allt og jólalög byrjuð að heyrast fyrir desember...það er alveg til að gera mann klikkaðann!! Held að fólk sé búið að gleyma að árið er nú bara 12 mánuðir og að það fari heilir tveir mánuðir í það að halda uppá jólin er bara aaaallllt of mikið!! það er alveg 16,7 % af árinu sem fer í jólin, við þyrftum að hafa eitthvað thanksgiving eða eitthvað svoleiðis hérna á íslandi svo það sé eitthvað á milli sumars og jóla því þetta er bara orðin einhver jólageðveiki hérna á Íslandi...
Er þetta nú ekki pínulítið of mikið af því góða????
» 2 hafa sagt sína skoðun
Seinast skrifaði ég að ég væri byrjuð að vinna á leikskóla....núna er ég hætt þar jaaaáááhhh það var ekki aaaaalveg fyrir mig ég samt eiginlega sakna krakkanna þar doldið og svo finnst mér eiginlega leiðinlegast að hafa ekki getað klárað öndina sem ég var byrjuð að perla... en að öðru leiti er ég bara eiginlega mjög ánægð því ég er byrjuð í nýrri vinnu, fyrsti dagurinn minn í dag, sem ég er bara að fíla mjög vel ég er búin að myspace-ast helling og spjalla á msn, slúðra og ég veit ekki hvað og hvað og það er bara svo gaman Get mætt fín í vinnuna án þess að koma til baka angandi eins og bleyja, þarf ekki að fara út í kuldann og get bara lúkkað án þess að vera með hor á höndunum og mat í fötunum ég dáist nú samt að fólki sem virkilega finnur sig í því að vera á leikskóla, en mér leið einhvernveginn eins og ég væri að hanga allan daginn því ég hafði ekkert svo mikið að gera, og þó svo ég sé drollari og fíli það að hanga allan daginn og gera ekki neitt þá vil ég samt hafa eitthvað að gera í vinnunni.... eins og núna, þá get ég til dæmis....uuuu bloggað hehe... eru þetta kannski einhver smá öfugmæli???
Ég fór í smá svona fyrirsætuleik um daginn með henni Arndísi skvísunni minni hún var búin að hanna helling af flottum fötum sem hún var að fara að sýna og fékk mig til að vera módelið hennar þetta gekk allt alveg ógeðslega vel og fötin voru sjúkt flott og þetta var bara svo gaman að ég hlakka bara til næst þegar hún er búin að gera fleiri föt!! Svo fengum við okkur bjór og kíktum á skrallið sem var bara rosalega nice....en ég fór síðan heim bara snemma....þ.e.a.s um 4 leytið
ég stal nokkrum myndum af síðunni hennar skvísípæ
verið að gera hárið mitt fínt
Arndís og ég
Ég í kjólnum sem ég gjörsamlega eeeeeeeelska )
Svo kíktum við til sigrúnar í halloween partý þar sem ég ákvað að vera það frumleg að vera bara hard rock þjónustu stúlka með sjúskað hár og klessta málningu....
Ég veit ekki alveg hvernig stemmningin varð svona.....eeeeen gaman engu að síður
Við enduðum síðan á sólon þar sem við áttum dansgólfið.....ofcourse
Svo vaknaði ég hress og úfin daginn eftir og það var bara nokkuð nett!!
kannski maður leggi í það að verða eitthvað duglegri að blogga þar sem nú er maður fastur við tölvuna allan daginn, sem er bara gott, nema maður lendi í einhverju svaðalegu myspace-stuði....annars er myspace-ið mitt svo oft svo dautt það er ekki gaman....
Nóg af þessu í bili.....heyrumst seinna, aldrei að vita nema það verði á morgun
» 5 hafa sagt sína skoðun
ég er lélegasti bloggari sem sögur fara af.... mig langar svo að vera dugleg að blogga en ég nenni því aldrei....
Ég er orðin tuttuguog eins... átti afmæli akkúrat fyrir viku síðan, fimmtudaginn 19.október,... núna mun ég eyða næstu árunum í það að vera tuttuguog "einhver tala" en ekki bara tuttuguogkúl...
Ég er líka byrjuð að vinna á leikskóla frá klukkan 9 til 17... það er ekkert smá .....uuuu... spes... en samt alveg ágætt..
Reyndar sakna ég þess doldið að sitja heima og gera voðalega lítið (þ.e.a.s. ekki neitt), sérstaklega þar sem ég held að nýjasta serían af 24 fari bráðlega að banka uppá hjá mér Reyndar eftir að 24 kláraðist þarna seinast þá hef ég farið að horfa á Nip/Tuck sem eru náttúrulega bara snilllllld!!! Til dæmis flotti læknirinn fer og biður einhvern sjúkling um að vera með hauspoka svo hann geti sofið henni því hún sé svo ljót en hún kemst að því að hún fílar bara að láta niðurlægja sig svona... svo gaurinn sem er að deita konu sem hann kemst síðan að að var karlmaður og er víst að sofa hjá syni sínum líka... og konan sem drap eitthvað flak sem var að lifna upp frá dauðum því hún hélt að það væri mamma sín en svo var það ekkert mamma hennar..... ohhh siðferðislega rangt og allt svo skemmtilegt
Ég fór á airwaves um helgina... ég hef ekki skemmt mér svona vel í laaaaangan tíma!! Því miður var bara allt of mikið af góðum böndum að spila svo maður náði ekki að sjá nærri því allt sem mig langaði að sjá ætla að skipuleggja mig betur næst enda ákvað ég nú bara að skella mér á seinustu stundu!
Svo er hann Bjarni búinn að kaupa sér íbúð Til hamingju Geezer
Þetta er orðið nóg í bili.... leiter skeiter - MLind -
Í kvöld gerðust undur og stórmerki!!!!!
Bíllinn OKKAR BJARNA (ritskoðun) fallegi er kominn á verkstæði!!!
Já gamlir menn sem snarhemla niður á grængulu ljósi ættu ekki að vera í umferðinni Vona að þetta taki sem stystan tíma svo maður geti nú verið flottur í umferðinni aftur
Í gær kíktum við stelpurnar á sólon til að horfa á Magna.... við sigrún vorum nú samt ekki svo mikið að fylgjast með þar sem okkur fannst mun meira spennandi að horfa ofaní glösin okkar sem voru fljót að tæmast Svo vildi nú ekki betur til en ég missti varasíma númer 1 ofan í klósettið... við hlógum svo mikið að því að síminn lá í dágóða stund á klósettinu... Varasími já því minn sími bilaði fyrir 2 vikum... Svo tók ég hann upp úr og setti hann á borðið til að láta hann þorna en svo var hann allt í einu horfinn... þannig að ef þið sjáið svona síma sem lyktar eins og klósett megið þið láta mig vita
Ég spyr nú samt hver í ósköpunum hefur séð einhvern gróða í því að "stela" svona síma??? Frekar spes....
Ég er á fullu að leita mér að vinnu... megið líka láta mig vita ef þið vitið um góða vinnu fyrir mig
Fimmtudagsstemmningin mín er núna að sitja heima í tölvunni, hlusta á angurværa tónlist af "bíódisknum" og drekka Pepsíið hans stjúpbróður míns sem er útúr reiv-aður á einhverju MR ballinu.... Skrýtið að hugsa til þess..maður er bara BÚINN með menntaskólann.. Keyrði framhjá MS í gær og maður sá alla krakkana í skólanum og svoleiðis... fyndið að þetta sé bara algjörlega búið tímabil... finito!!! mjög blendnar tilfinningar!!
Svo kíkti ég til hans Bjarna í dag með klippigræjurnar mínar og snoðaði kallinn... núna er hann ekkert smááááá flottur og þetta tók bara mjög stuttan tíma!! Nice work María Lind .....já okey ég á ekkert líf!!!
» 8 hafa sagt sína skoðun
jæja... nú er ég búin með 24... allavega í bili... það er samt svo skrýtið að byrja að horfa á "venjulegar" bíómyndir eftir að maður hefur horft á 24 þar sem tíminn er "ekki í lagi".... þá líður helgi bara kannski á 10 mínútum... úff frekar ruglingslegt sko
Maður er nú samt búinn að gera miklu meira en að hanga yfir sjónvarpinu... Eins og ég sagði þarna um daginn þá fór ég í Flass FM grillpartý á Hressó með Auði og beibunum hennar seinustu helgi... það var mjög skemmtilegt og við dönsuðum þar til við gátum ekki mögulega svitnað meira!!!
komin á hressó
Auður og Salvör beibur
Ég og Auður skemmtum okkur konunglega!!!
Þetta var stemmning kvöldsins Stefnir og Þórhalla alveg að missa sig í gleðinni!!!!
Auður og vinur hennar hehehe
Svo fór ég á Prikið og hitti fleira furðulegt fólk....
Tinni og "HR.Ísland" og Jökull töffari!
Tinni og Baldur
Og svo endaði ég á 11 þar sem stemmningin var veeeeerulega sveitt!!!
Á laugardaginn fyrir viku var svo singstarpartý á Ölstofunni... AKA heimilinu hennar sigrúnar... ég auðvitað rústaði singstar eins og mér einni er lagið hehehe.... en Ása, Stefnir og Sigrún áttu alveg góða takta... samt ekki eins góða og ég (já ég er að taka smá hérna egó )
ég og sigrún // ég og ása
Sigrún og Sigrún // Sigrún og Ása.... jebb sigrún á smá myndaflippi því ég var upptekin að syngja
Svo kíktum við í bæinn og hittum meðal annarra þessa stráka sem voru alveg aaaaauuuuuugljóslega mjöööög edrú...allir hehe
Enduðum svo á hverfis þar sem Sigrúnu tókst að STINGA MIG AF og skilja mig eftir símalausa með fólki sem ég þekkti engan veginn nógu vel .... TAKK LILLI!!!! ....eeeeeeen hún fékk það líka maaaargfalt borgað til baka seinna um kvöldið hehehehe....
úfffff... þegar maður bloggar ekki svona lengi til að henda inn einhverjum myndum þá einhvernveginn safnast þetta svo endalaust upp svo maður er svo lengi að þessu,,,, ég á eitt kvöld eftir...hmmm....
Seinasta föstudag kom Lára til mín og við gerðum okkur til til að kíkja í partý með Matt Dillon... það var alveg frekar gaman að sjá hvernig þetta allt saman gengur fyrir sig og er í kringum svona stjörnur en váááá....stelpur sjá bara "celebrity" og hópast í kringum hann og reyna og reyna og reyna.... það var frekar spes að sjá þetta!! Ég og Lára sátum bara útí horni og ákváðum frekar að einbeita okkur að fría áfenginu sem var í boði...hann kom nú samt og heilsaði mér og spurði hvað ég hét og kynnti sig og svoleiðis.... og svo náði stelpnagerið honum og kæfði algjörlega!!!
Moi & Lára
Ég fór svo og hitti Lillan minn og Stefaníu og rölti aðeins með þeim en endaði svo á sveittu 11 þar sem hellt var yfir mig heilum bjór og maskarinn minn lak alveg alla leið niður í bolinn minn ég veit hver gerði það og hefnd er í undirbúningi!!!! Svo bara pizza king og heim í mjúkt rúm
11 í hnotskurn!!!
Ég tók ósköp rólegan laugardag, fór upp í sumarbústað til afa og ömmu og þau gáfu mér dýrindis mat og góðgæti en við mæðgurnar vorum svo komnar í bæinn aftur um 10 leytið, kíktum á Bjarna í nýja vinnujakkanum sínum (ýkt flottur )og fórum svo bara fljótlega að kúra og lúlla
Í dag vorum við eiginlega bara úti allan daginn að skoða blómin og hlaupa undan geitungum.... díses hvað þeir eru útum allt!!! Ég var að reyna að gefa Anniku að borða úti en þeir sóttu svo í matinn hennar að það var nær ómögulegt!! Fórum líka í Grasagarðinn með Lilla að labba og enduðum svo á American Style þar sem við þurftum að bíða eftir matnum í laaaaaangan tíma og Annika stakk af til að pota í krakka í krakkahorninu og eignast vini hún er alltaf svo sæt!!!
Lokamyndin af fallegustu dísinni þegar hún var að reyna að loka mömmu sína inni á klósetti fyrr í dag.... eins og sést... það var ekki leiðinlegt að læsa mömmu inná wc
Jæja... ætla að fara að skríða uppí til litlu skvísunnar minnar
Góða nótt allir saman og endilega kvittið fyrir innlitið... þó svo ég þekki ykkur ekki neitt
» 9 hafa sagt sína skoðun
Skil ekki alveg með þetta veður.. ég fór út áðan og það var heiðskýrt (svona næstum) og glampandi sól... en það eina sem ég hugsaði um var bara "hvar er snjórinn??" og mig langar ógeðslega mikið á skíði og snjóbretti!!!!!!!!
ég held það hafi nú ekkert verið alveg gríðarlega heitt en ég held það hafi ekki verið samt það kalt að maður hélt að það væri snjór.. kannski að gærdagurinn sé eitthvað að skemma fyrir manni...
ég vaknaði - fór fram í stofu - kveikti á 24 - sótti pizzu og Annikuna mína - hélt áfram að horfa á 24 - fór í mat til pabba - kom heim og horfði á 24- sofa... núna á ég bara 2 þætti eftir af 4.seríu... þetta er alveg ekta til að vera húkkt á...
Jack Bauer er nottla alveg illa svalur og by the way þá er ég núna frekar oft í jakka sem Kiefer hefur sko hitt hehehe... takk stefanía
Ætla að reyna að gera aðeins meira í dag heldur en í gær... kannski maður nái nú samt að klára líka 24 í dag... aldrei að vita Ætla svo við tækifæri að skella inn nokkrum myndum síðan seinustu helgi.... úfffff það var nú meiri helgin... gaman engu að síður
Farin út að þrífa bílinn í góða veðrinu
Í dag er litla Lindin mín 1 árs!!!!
Hún er svona afmæliskisa í tilefni dagsins og lang lang laaaaang sætust!!!!!!
» 6 hafa sagt sína skoðun
jáhh tíminn líður nú ekkert smáááá hrattt!!!! Í gærkvöldi þegar ég sat og var að horfa á sjónvarpið fór ég að hugsa... á þeirri stundu akkúrat fyrir ári síðan fékk ég fyrstu verkina þegar ég var að kaupa grillkjöt í krónunni.... Akkúrat núna er nákvæmlega ár síðan ég var í tennis með bullandi hríðarverki og vissi ekkert hvað biði mín á næstu klukkutímum...
Mér finnst eins og þetta hafi verið í gær.....
ekki amalegur skuggi þetta...
Á morgun verð ég búin að vera mamma í heilt ár - Annikan mín er farin að labba alveg 10 skref þegar maður lokkar hana til sín en það er miklu auðveldara að skríða samt.... Svo skrýtið - þegar fæðingin var afstaðin og maður var kominn með krílið í hendurnar, þreyttur, aumur og uppgefinn en samt svo hamingjusamur og ánægður!! Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert en borgaði sig margfalt til baka og ég gæti ekki verið ánægðari í dag!!!
Stoltir foreldrar með litlu prinsessuna sína...
laaaaaangsætust!!!!
Hún er orðin svo stór í dag... stór og dugleg og ég er heppnasta manneskja í öllum heiminum að eiga svona heilbrigða og yndislega dóttur!!!
Algjör grallari!!!
maður má nú leyfa sér að vera væminn öðru hverju er það ekki???
jæja, kannski kominn tími á að henda einni færslu hingað inn!
Ég var bara 3 daga þarna á veðurstofunni en er núna komin yfir til Anza í mjög svipað djobb... svara síma og hanga á msn. Það versta er þegar fólk fer í hádegismat því þá er eiginlega ekkert að gera á msninu en yfir höfuð er bara mjög rólegt hér í vinnunni.
Það er ekkert mikið að frétta, Annika er farin að reisa sig upp við allt sem hún getur náð í og er komin með 2 framtennur í efri góm til viðbótar við þessar tvær litlu niðri.
Fyrstu helgina í júlí fórum við í Hallgeirsey þar sem var háskóla-verkfræðiútilegu-djamm. Ég fór með Ásu í bíl en við tjölduðum í lítilli tjaldborg með Eyrúnu og Sigrúnu og Stefaníu og Sigrúnu... það var alveg æðislega gaman og ég held að sjaldan hafi ég drukkið jafn mikið en verið í jafnmiklu stuði!! Þegar við komum á svæðið var klukkan farin að nálgast 12 leytið svo við þurftum aldeilis að hafa hraðann á til að missa ekki af stuðinu sem var komið í fólk. Það gekk nú reyndar alveg þvílíkt vel fyrir sig og Stefaníu var hent í ruslatunnu!!! svo fékk ég skemmtilegt símtal frá Erlu Heiðrúnu þar sem hún er að hringja frá Manchester og búin að stúta heilum 10 bjórum!!! - enda var stuðið þvílíkt!! Á laugardeginum vakna ég heldur betur svöng og hugsa um allan matinn sem ég átti í bílnum hennar ásu, ég hringi í hana þar sem hún var ekki í tjaldinu en neinei, þá er konan bara búin að keyra til Reykjavíkur MEÐ matinn minn... yyyyndislegt!! jæja, það reddast því við förum á Hvolsvöll til að fá okkur pizzu og fara í sturtu... komum aftur á tjaldsvæðið og ætlum að leggja okkur aðeins. Ása ákvað mér til mikillar ánægju að vera aðra nótt þrátt fyrir að vera ekki sú allra jákvæðasta í garð útilega og kemur hress og kát um 18 leytið! Þá drögum við fram grillið og bjórinn og hefjumst handa við að grillla okkur mat.... eða ég hefst handa við að grilla fyrir þær... Kartöflur fyrir Stefaníu, hammara fyrir Sigrúnu og Eyrúnu og svo ætlaði ég að grilla hamborgara fyrir okkur hinar, en lyktin af þeim var svo funky að ég ákvað að kasta þeim fyrir pulsur sem ég gat fengið frá góðhjörtuðum strákum í nágrenninu
Svo koma einhverjir leiðindagaurar í JAKKAFÖTUM (kommon - hver fer í útilegu í jakkafötum) og þeir eru svo leeeeeiðinlegir!! Þeir setjast hjá okkur ásu, orðnir veeel í því og halda að þeir séu mestu töffarar í heiminum... tala um leiðinlega hluti og að endingu hella þeir sápukúlum yfir grillið okkar og það sem var á því!! vá þetta var svo mikill mooodkiller að það rann af mér eins og skot og ekkert lagaðist þar til BOB & BETTY komu til sögunnar og tópas-flaskan var opnuð Við hittum gulann mann sem safnaði símanúmerum.... þó svo að eitt símanúmer var kannski aðeins meira sérstakt heldur en öll hin Við fórum og dönsuðum í bátnum og ég held að ég og ása höfum fengið smá titanic stemmó á meðan stefanía leitaði að sínum ódauðlega titanic koss...sem ég bara veit ekki alveg hvort hún hafi fengið eða ekki Svo má auðvitað ekki gleyma trektinni sem vakti þvílíka lukku hjá okkur stelpunum, enda var mjög gaman að taka smá svona trektardrykkju... þó ekki of mikið
Þreytan var mikil á sunnudaginn og við þþurftum að bíða í eina 2 tíma eftir að geta keyrt af stað... Ég fékk ekki að blása því löggan sagðist nú bara sjá að ég væri ekki ökufær
Þetta var alveg prýðisgóð helgi þó fólk hafi verið í mismiklu stuði... hér eru nokkrar myndir: http://mingvarsdttir.photosite.com
Nú er næst bara að pæla í hvað á að gera næstu helgi
Popular Bitch
Athletic Tomboy
Slut
Preppy Girl
Nerdy Girl
Hippy
Goth
Loser
What type of girl are you?!! created with QuizFarm.com
haldiði að maður sé nú ekki bara orðinn myspace nörd?? jújú.... að áeggjan Arnþórs ákvað maður að skrá sig í þetta netsamfélag... líka á svona temmilega góðum tímapunkti þegar maður hefur EKKERT betra að gera en að hanga á netinu ....jah eða ekki.... ég reyni nú að læra fyrir prófin líka þegar ég hef tíma
Endilega kíkið á mig og ef þið eruð líka þarna að nördast megiði alveg adda mér
http://myspace.com/marialind
- viltu vera myspace vinur minn??
Ég trúi ekki að það sé búið.....þetta var svo ótrúlega skemmtilegt að ég vildi óska þess að það væri hægt að spóla tilbaka og gera allt upp á nýtt!!! Við byrjuðum á því að hittast heima hjá Baldri upp úr klukkan 7 þar sem við fengum okkur rúnstykki, vínarbrauð og hvítvín...maginn var ekki lítið hissa..hvað maður var að hella í hann áfengi svona snemma, en hann var nú alveg sáttur á endanum
Villi, Ármann og Baldur
Bubba og ég
Ragga og Friddi - sem ég var ekki að muna allan daginn hvað héti
Eftir nokkur hvítvínsglös og bjóra var stemmningin orðin nokkuð mikið góð og ekki var hægt að sjá á fólki að klukkan væri nú bara rétt um 9 fyrir hádegi.... Strákar í sokkabuxum settu mikinn svip á partýið enda ekkert nema gott um það að segja
Svampaklessa
Að koma í skólann - sængin er vinur bekkjarins en þó ekki í skólanum
Við gengum í gegnum Vogaskóla á leiðinni niður í MS og krakkarnir voru ekkert smá hissa að sjá heila her af Svampi Sveinssyni þramma yfir skólalóðina...Svo tókum við okkur stöðu fyrir utan portið og biðum eftir laginu okkar..... ,,Who lives in a pineapple under the sea..Spongebob Squarepants....."
Svampaknús
Þar hittum við hinar ýmsu kynjaverur, Batman og Mr.Potatoe-head en ég var ekki alveg nógu dugleg að taka myndir af öðrum en okkur svömpunum Svo var bara hnoð og hopp á skólalóðinni ásamt pulsum og sprite zero.... Bubba lenti reyndar í því að það var hoppað á hana og hún lenti svo illa að hún fór úr lið..... en það lagaðist allt þegar hún fékk nýjan bjór
Komin aftur heim til Baldurs...allir MJÖG ferskir eftir hnoðið á skólalóðinni
Eftir það héldum við niður í bæ í strætó og settumst inn á kaffihús þar sem við fengum okkur samloku.... reyndar var okkur meinað inngöngu á annan stað þar sem við vorum sögð hauslaus - hvort sem það var búningurinn eða "eitthvað" annað sem daman átti við það veit hún ein
Hér er mín komin heim eftir langan dag!!!
Ég var komin heim upp úr 3 og dreif mig í sturtu og lagði mig svo í 40 mínútur hjá litlu dúllunni minni!! Hún var ekkert smá glöð að sjá mömmu sína!!! Klukkan 18 var ég komin upp í skólann aftur og upp í rútuna sem keyrði okkur í Bása í Hveragerði... Þetta var eins og stór þjóðveldisbær og svaka flott....
Við sátum allur bekkurinn saman og Hákon mælti svo snilldarlega í byrjun borðhalds að við myndum öll fara þaðan rúllandi út!!! Maturinn var góður og að honum loknum var flýtt sér á barinn.... ég fékk mér rauðvín og nóg af því
sumir voru í "aðeins" meira stuði en aðrir
Og það var dansað og dansað og dansað - kennarar sem og nemendur.... meirað segja ljósritunardaman dansaði eins og hún fengi borgað fyrir!!! Og þegar maður var kominn í mesta stuðið var sagt að rúturnar væru að leggja af stað heim.... og því var pælingin að kíkja í bæinn á eftir... Við Bubba fengum far í bæinn en þeir sem við ætluðum að hitta höfðu af einhverjum óskiljanlegum ástæðum lent upp í rúmi heima hjá sér og sofnað Bærinn var hálf-tómur og lítið um að vera svo eins og fyrri daginn var það eiginlega bara frekar boring
Hins vegar fór ég á 11-una til að hitta Helgu og með henni var þá hún Kristín sem hafði óvænt komið til Íslands fyrr um daginn!!
Við fórum svo bara á Pizza King og svo heim... ég var orðin vel edrú og ÞREYTT eftir VEL heppnaðan dag!!!
Leiðinlegast finnst mér þó að hafa ekki kynnst bekknum fyrr en bara á þessum degi í rauninni.... þó svo að hafa verið með þeim í alveg 2 ár!!! Það er þó kannski bara betra... þá hefði maður vitað hvað maður var að missa af í allan vetur - sem hefði pottþétt gert mig G.R.U.M.P.Y!!!
Dagurinn í hnotskurn:
Þetta var svo geðveikt að ég get ekki lýst því!!!
Farin að læra en látiði nú heyra í ykkur þið sem kíkið inn Leiter skeiter
Do I need to say more????
Pönk-prinsessan
!!!HOT!!!
Sakleysi á franskan máta
Til Betuhnoðrans míns - Til hamingju með afmælið skvísípæ L U V -marialind-
» 1 hafa sagt sína skoðun